Engin kona á lista yfir heitustu Moggabloggarana

Moggabloggið, blog.is, er vinsælasti íslenski bloggvettvangurinn með í kringum 50 þúsund notendur í hverri viku, samkvæmt Veflista Modernus. Engin kona er á meðal vinsælustu Moggabloggarana.

Vinsælasti Moggabloggarinn þessa vikuna var Páll Vilhjálmsson. Í lýsingu á síðunni kemur fram að hann er blaðamaður og kennari. Ekki-Baugsmiðill. Um 1.300 manns litu daglega við á blogginu hans að meðaltali síðustu sjö daga en hann er jafnframt á meðal umdeildustu boggara landsins.

Topp 10 listann má sjá hér fyrir neðan. Hann er nokkuð einsleitur.

Leita þarf niður í 24. sæti listans til að finna efstu konuna. Hún heitir Ásthildur Cesil Þórðardóttir og fékk 145 gesti að meðaltali á dag síðustu sjö daga.

Listinn yfir vinsælustu Moggabloggarana lítur svona út:

Auglýsing

læk

Instagram