Eyddi 23 milljónum til að líkjast Madonnu

Fólk kaupir sér stundum föt til að líkjast uppáhaldsstjörnunum sínum. Adam Guerra er hins vegar búinn að eyða 175.000 dölum, um 23 milljónum króna, til að líkjast poppdrottningunni Madonnu.

Guerra stígur fram í þættinum My Strange Addiction á sjónvarpsstöðinni TLC en hann er mikill aðdáandi Madonnu. Svo mikill að hann er búinn að fara í 18 lýtaaðgerðir til að líkjast átrúnargoði sínu og fyrir þær hefur hann borgað um 75 þúsund dali.

Brot úr þættinum má sjá hér fyrir neðan.

Á meðal þess sem hann hefur látið gera er dæla bótóxi í kinnarnar ásamt því að láta laga kjálkann. Þá er hann búinn að eyða um 100 þúsund dölum í búninga, skartgripi og fylgihluti.

En af hverju?

Ég sé manneskju sem fór úr engu í eitthvað í Madonnu. Hún er alltaf hún sjálf og lætur sér fátt um finnast hvað fólk segir um hana. Hún er sú sem allir vilja vera.

Horfðu á Adam Guerra í þættinum hér fyrir neðan.

https://www.youtube.com/watch?v=NUL0D4olpZ8

Auglýsing

læk

Instagram