Fjórar kirkjur á Akureyri urðu fyrir barðinu á skemmdarvörgum í nótt, spreyjað í öllum tilvikum

Ókvæðisorðum var spreyjað á fjórar kirkjur á Akureyri í nótt.

Um er að ræða Akureyrarkirkju og Glerárkirkju, sem báðar eru kirkjur þjóðkirkjunnar, Hvítasunnukirkjuna og Kaþólsku kirkjuna.

Þrjú skemmdarverkanna hafa verið tilkynnt til lögreglu, samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Akureyri.

Sjá einnig: Skemmdarvargar spreyjuðu ókvæðisorðum á Akureyri í skjóli nætur, jarðarför framundan í dag

Spreyjað var á fram- og suðurhlið Akureyrarkirkju með svörtum úðabrúsa. Útför fer fram frá kirkjunni í dag en ekki er víst að náist að fjarlægja skemmdarverkin í tæka tíð áður en hún hefst.

Svavar Alfreð Jónsson, sóknarprestur, staðfesti þetta í samtali við Nútímann en hann birtir myndir af skemmdarverkunum á Facebook-síðu sinni í morgun.

Úðabrúsi fannst við kirkjuna í morgun. Búið er að hafa samband við lögreglu og tryggingafélag vegna málsins.

 

Auglýsing

læk

Instagram