Fjórar útgáfur af Nothing Compares 2U

Shuhada’ Davitt, sem áður hét Sinéad O’Connor, náði heimsfrægð árið 1990 með flutningi sínum á Prince laginu Nothing Compares 2U. Lagið hlaut litla eftirtekt með The Family, hljómsveit sem var smíðuð í kringum lagasmíðar Prince.

Shuhada’ Davitt setti lagið í glænýjan búning 5 árum síðar og var lagið í reglulegri og stífri spilun á tónlistarmyndbandastöðvum ásamt því að tylla sér á toppinn á vinsældarlistum um allan heim.

Lagið var ekki tekið upp í samráði við Prince. Hún og Prince lentu í slagsmálum á heimili Prince eftir fund þeirra þar sem Prince var ósáttur yfir því að hún blótaði í viðtölum.

Tveim árum áður en Chris Cornell kvaddi þennan heim breiddi hann yfir lagið fyrir útvarpsmiðilinn Sirius XM. Hann er þar með strípaða útgáfu. Hann sjálfur með kassagítar ásamt öðrum kassagítar og sellói.

Loks er svo Prince sjálfur, en fyrr á árinu var grafin upp upptaka af honum æfa lagið árið 1984, ári fyrir upprunalega útgáfu þess.

Auglýsing

læk

Instagram