Fjórum óútgefnum lögum með Spice Girls lekið á netið

Fjórum óútgefnum og ókláruðum lögum með stúlknasveitinni Spice Girls hefur verið lekið á netið. Hægt er að hlusta á lögin hér fyrir neðan. Lögin fjögur voru tekin upp fyrir þriðju og síðustu plötuna Forever sem kom út árið 2000 og var síðasta plata sveitarinnar.

Geri Halliwell var búin að yfirgefa Spice Girls og þær Emma, Mel B, Mel C og Victoria reyndu að þróa nýja hljom með hjálp R&B uppstjóranna Rodney Jerkins, Jimmy Jam og Terry Lewis.Þeir höfðu unnið með söngkonum á borð við Janet Jackson, Mary J. Blige og Whitney Houston.

Platan komst hæst í 39. sæti bandaríska Billboard-listans og lögin hér fyrir neðan sem koumst ekki að heita A Day In Your Life, If It’s Lovin’ On Your Mind, Pain Proof og Right Back At Ya.

Uppfært: Búið er að taka lögin niður.




Auglýsing

læk

Instagram