Floyd Mayweather svarar Rondu Rousey: Hringdu þegar þú þénar 300 milljónir dala á hálftíma

Skotin ganga enn á milli boxarans Floyd Mayweather og bardagakonunnar Rondu Rousey.

Mayweather var í viðtali í fyrra spurður út í ummæli Dana White, forseta UFC-bardagasambandsins, sem sagði að UFC-meistarinn Ronda Rousey gæti gengið frá honum.

Mayweather sagðist ekki vita hver „hann“ er og málið vakti talsverða athygli þar sem Ronda er að sjálfsögðu kona.

Sjá einnig: Hálfviti vinnur boxbardaga

Ronda svaraði hressilega fyrir sig á dögunum þegar hún tók við ESPY-verðlaunum ESPN-sjónvarpsstöðvarinnar sem besti bardagamaðurinn.

Ronda sagðist velta fyrir sér hvað Floyd finnst um að vera sigraður af konu. Skotið þýðist illa á íslensku þar sem hún sagði „beat“ sem þýðir bæði sigraður og laminn. „Það væri gaman að sjá hann þykjast ekki vita hver ég er núna,“ bætti hún við.

Floyd Mayweather hefur nefnilega beitt barnsmóður sína, unnustur og aðrar konur og karla ofbeldi í gegnum tíðina. Við fórum yfir það hér.

Mayweather var spurður út í þessi ummæli Rousey í þættinum SportsCenter á sjónvarpsstöðinni ESPN í gær.

„Ég hef ekki ennþá séð neinn MMA bardagamann, eða annan boxara, þéna meira en 300 milljónir dala á 36 mínútum. Hún má hringja í mig þegar henni tekst það,“ sagði hann.

Auglýsing

læk

Instagram