Flutti inn á elliheimili til að geta hugsað um 80 ára gamlan son sinn

Hinn 80 ára gamli Tom Keating flutti inn á elliheimilið, Moss View í Liverpool borg á síðasta ári. Aðeins ári síðar ákvað móðir hans, hin 98 ára gamla Ada að flytja inn á sama heimili til að sjá um son sinn. Það er staðarblaðið Liverpool Echo sem segir frá þessu.

Þau mæðgin eru afar náin en Tom hefur aldrei átt konu svo hann hefur búið hjá móður sinni alla tíð. Ada segir í viðtali við Liverpool Echo að þau Tom séu bestu vinir. „Ég segi góða nótt við hann á hverju kvöldi,“ segir Ada.

Maður hættir aldrei að vera mamma

Tom er einnig ánægður með að fá mömmu sína „heim“ aftur. „Hún er mjög góð í að hugsa um mig en skammar mig stundum“ segir Tom.

Auglýsing

læk

Instagram