Framhald af Love Actually væntanlegt, næstum allir leikararnir með

Það er komið að því, við fáum framhald af jólamyndinni ljúfu, Love Actually! Handritshöfundur og leikstjóri myndarinnar og næstum leikarar myndarinnar ætla að koma saman á ný við gerð stuttmyndarinnar Red Nose Day Actually.

Meðal þeirra leikara sem munu koma fram í myndinni verða þau Colin Firth, Keira Knightley, Hugh Grant, Liam Neeson, Andrew Lincoln, Bill Nighy og Rowan Atkinson. Þau munu öll koma fram í sömu hlutverkum og í Love Actually.

Myndin verður sýnd á Red Nose Day Special, góðgerðarviðburði þar sem markmiðið er að safna peningum fyrir börn sem búa við fátækt í Bandaríkjunum og víðar um heiminn.

Red Nose Day Actually verður sýnd á sjónvarpsstöðinni BBC1 24. mars .

Auglýsing

læk

Instagram