Fylgdist með eiginkonu sinni í laumi á Pinterest til að fá hugmyndir að gjöfum handa henni

Ótrúleg útsjónarsemi hins 29 ára gamla Jordan frá Boston hefur vakið heimsathygli en hann stofnaði sérstakan Pinterest-aðgang til að fylgjast með eiginkonu sinni á samfélagsmiðlinum og fá hugmyndir að gjöfum handa henni. Fréttavefur Buzzfeed fjallar um málið.

Pinterest er samfélagsmiðill þar sem fólk birtir myndir af hlutum og öðru á sérstökum möppum sem aðrir geta skoðað. Jordan sagði frá leyndarmáli sínu á Twitter og hefur tístið náð ótrúlegri útbreiðslu: Tæplega 318 þúsund hafa líkað við það og búið er að endurtísta því rúmlega 87 þúsund sinnum.

https://twitter.com/CapricornKing_/status/891275530779201536?ref_src=twsrc%5Etfw&ref_url=https%3A%2F%2Fwww.buzzfeed.com%2Ftanyachen%2Fjordan-has-been-romancing-in-3017

Í samtali við fréttavef Buzzfeed segir Jordan að hugmyndin hafi komið árið 2014 þegar hann var nýbúinn að kynnast TyÖnnu en þau giftu sig í mars. Hann var að leita að fullkominni gjöf fyrir Valentínusardaginn og sameiginlegur vinur þeirra lagði til að hann skoðaði Pinterest-síðuna hennar. „Ég hafði aldrei heyrt um Pinterest á þessum tíma,“ segir hann.

Hann kynnti sér Pinterest betur og stofnaði aðgang, gagngert til að fylgjast með eiginkonu sinni. Síðustu ár hefur hann svo notað aðganginn til að fá hugmyndir að gjöfum handa henni.

„Hún er vandlát og vill oftar en ekki litla hluti eða handgerða. Þannig að ég vil reyna að hitta á réttu gjöfina í fyrstu tilraun,“ segir Jordan.

Það var ekki fyrr en síðasta laugardag sem heimurinn komst að þessu litla, eða öllu heldur risavaxna leyndarmáli, og viðbrögðin stóðu ekki á sér. Á Twitter hefur fólk hampað Jordan og jafnvel kallað hann klárasta mann heims. Þá hefur hann fengið beiðnir um góðar gjafahugmyndir ásamt því að einhverjir telja að eiginkona hans hafi alltaf vitað af þessu og að hún hafi notað Pinterest til að fá gjafirnar sem hún þráir.

TyAnna staðfestir hins vegar í samtal við Buzzfeed að hún hafði ekki hugmynd um ráðabrugg eiginmannsins. „Mér fannst þetta virkilega sætt en þetta kom mér ekki á óvart þar sem Jordan gerir allt til að gera mig hamingjusama,“ sagði hún.

Þetta virkar líka mjög vel. Hann kaupir alltaf handa mér ótrúlegar gjafir.

Jordan ítrekar hins vegar að gjafir séu ekki nauðsynlegar til að viðhalda góðu sambandi eða hjónabandi.

Auglýsing

læk

Instagram