Fyrsta stiklan úr A.D. — Sjáðu Jóhannes Hauk

Sjónvarpsstöðin NBC hefur birt stiklu úr þáttunum A.D. Þátturinn verður frumsýndur ytra á páskadag.

Jóhannes Haukur Jóhannesson fer með hlutverk í þáttunum þar sem þráðurinn er tekinn upp eftir að Jesús hafði risið upp frá dauðum. Lífi lærisveinanna er fylgt eftir og hvernig þeim tekst að halda sér á lífi þrátt fyrir ofsóknir af hálfu rómverskra yfirvalda.

Jóhannes Haukur leikur Thomas en hefur ekki tjáð sig um hlutverkið.

Þættirnir eru framleiddir af Mark Burnett sem er meðal annars á bakvið raunveruleikaþætti á borð við Survivor, The Apprentice og The Voice.

http://youtu.be/dSoFbndq0xs

Auglýsing

læk

Instagram