Gunnar Nelson að vera Gunnar Nelson í Las Vegas

Spennan er að ná hámarki fyrir bardaga Gunnars Nelson og Brandon Thatch annars vegar og Conor McGregor og Chad Mendes hins vegar á UFC-bardagakvöldi í Las Vegas á laugardag.

Sjá einnig: Conor McGregor hrifnari af flugeldum en Gunnar Nelson

UFC birti nú í kvöld örstutt myndband á Vine þar sem Gunnar sést árita plaköt í Las Vegas. Bardagasambandið stenst ekki freistinguna að grínast aðeins og skrifar við myndbandið í hástöfum að Gunnar sé SPENNTUR fyrir bardagakvöldinu á laugardaginn.

Hér má sjá umrætt Vine-myndband. Gunnar Nelson að vera Gunnar Nelson.

Gunnar fór í myndatöku fyrir bardagann í dag og tók fánann með.

Auglýsing

læk

Instagram