Handtekinn með 50 grömm af kókaíni í dalnum

Maður var handtekinn með tæp 50 grömm af kókaíni í fórum sínum á Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum í dag. Maðurinn er grunaður um sölu á efninu. Þetta er stærsta fíkniefnamálið sem komið hefur upp það sem af er helgi. Þetta kemur fram á vef RÚV.

Um 60 fíkniefnamál hafa komið upp á Þjóðhátíð. Engar upplýsingar fást um hvort einhver kynferðisbrot hafi veri tilkynnt á hátíðinni.

Í fréttum RÚV í kvöld kom fram að búist sé við að um 15 þúsund manns taki undir með Ingó veðurguð í brekkusöngnum sem hefst klukkan 23.15 í kvöld.

Á Neistaflugi á Neskaupsstað og á Akureyri hafa hvorki komið upp fíkniefna- né kynferðisbrotamál, samkvæmt fréttum RÚV

 

Auglýsing

læk

Instagram