Harry prins og Meghan Markle trúlofuð og gifta sig næsta vor

Harry Bretaprins og bandaríska leikkonan Meghan Markle eru trúlofuð og hafa ákveðið að ganga í hjónaband næsta vor. Þetta kemur fram í tilkynningu frá bresku konungsfjölskyldunni sem meðal annars birtist á Facebook.

Í tilkynningunni segir að þau Harry og Meghan sem þekktust er fyrir leik sinn í sjónvarpsþáttunum Suits, hafi trúlofast í London fyrr í þessum mánuði.

Harry og Meghan hafa verið saman frá því júní 2016.

His Royal Highness Prince Henry of Wales and Ms. Meghan Markle are engaged to be married.His Royal Highness The Prince…

Posted by The Royal Family on Mánudagur, 27. nóvember 2017

Auglýsing

læk

Instagram