Heimurinn fær að kynnast Caitlyn Jenner

Væntanleg forsíða tímaritsins Vanity Fair hefur vakið gríðarlega athygli. Caitlyn Jenner situr fyrir á forsíðunni en hún var áður þekkt sem Bruce Jenner, frjálsíþróttamaður og fjölskyldufaðir Kardashian-fjölskyldunnar.

Sjá einnig: Bruce Jenner kemur út sem transkona

Jenner talar opinskátt um kynleiðréttingu sína í blaðinu.

Ef ég myndi liggja fyrir dauðanum hafandi haldið þessu leyndu og ekkert gert í þessu myndi ég segjast hafa klúðrað lífi mínu.

Blaðið kemur út 9. júní og markar tímamót þar sem Jenner er að stíga fram sem kona í fyrsta skipti.

Annie Leibovitz tók myndirnar en Buzz Basingar tók viðtalið og fékk aðgang að fjölskyldu Jenner, sem hefur verið í kastljósi fjölmiðla síðustu ár af ýmsum ástæðum.

Auglýsing

læk

Instagram