Hin einhenta Lauren útbjó flottasta hrekkjavökbúning ársins

Hin tvítuga Lauren lenti í því fyrir ári síðan að missa handlegg í móturhjólaslysi. Hún ákvað að nýta sér það til að útbúa besta hrekkjavökubúning ársins. Lauren sýndi afraksturinn á Twitter í vikunni og fékk gríðarlega góð viðbrög

Búningurinn vr að sögn Lauren afar einfaldur en hún málaði handleginn sem hún missti í slysinu þannig að hann leit út eins og opið sár. „Herbergisfélagi minn var með gest í heimsókn og þau fengu næstum hjartaáfall þegar þau sáu mig,“ sagði Lauren í samtali við breska vefmiðlinn Unilad.

https://twitter.com/DuckFanAccount/status/919792401278935041

Lauren hefur áður komist í fréttirnar eftir að hún missti handlegginn en hún bjó til aðgang á stefnumótaforritinu Tinder þar sem hún gerir stólpagrín að sjálfri sér og þeirri staðreynd að hún sé aðeins með eina hendi.

Auglýsing

læk

Instagram