Hrikalega krúttlegt atriði úr Fúsa

Nútíminn birtir hér hrikalega krúttlegt atriði úr kvikmyndinni Fúsi sem verður frumsýnd á föstudaginn. Fúsi þekkir útvarpsmanninn á Rás 2 og býður konunni sem hann er að hitta óskalag. Atriðið má sjá hér fyrir neðan.

Sjá einnig: Blaðamaður Variety þekkir ekki Fóstbræður og kallar Gussa nýliða

Fúsi er liðlega fertugur og býr einn með móður sinni. Líf hans er í afar föstum skorðum og lítið sem kemur á óvart. Þegar ung stúlka og kona á hans reki koma óvænt inn í líf hans, fer allt úr skorðum og hann þarf að takast á við ýmislegt í fyrsta sinn.

Dagur Kári leikstýri og skrifar handritið að Fúsa, sem er framleidd af þeim Baltasar Kormáki og Agnesi Johansen fyrir RVK Studios. Hér má sjá stikluna úr myndinni.

Auglýsing

læk

Instagram