Sigurvegarar!

Kvikmyndin Hross í oss fékk í dag kvikmyndaverðlaun Norðurlandaráðs. Benedikt Erlingsson, leikstjóri og handritshöfundur, og Friðrik Þór Friðriksson framleiðandi tóku á móti verðlaununum í Stokkhólmi í dag.

Hross í oss er fyrsta íslenska kvikmyndin sem hlýtur verðlaunin.

Kvikmyndaverðlaun Norðurlandaráðs nema 350 þúsundum danskra króna, eða rúmum sjö milljónum íslenskra króna. Þau voru afhent af verðlaunahafa síðasta árs, Sisse Graum Jørgensen, í ráðhúsinu í Stokkhólmi. Myndin var búin að safna saman meira en tíu milljónum í verðlaunafé.

Í rökstuðningi dómnefndar kemur fram að Hross í oss sé sérlega frumleg mynd með rætur í kjarnyrtum húmor Íslendingasagnanna:

Hún fjallar um um þau sterku bönd sem eru á milli manna og náttúrunnar. Kjarni samtvinnaðra frásagna myndarinnar er eilíf barátta mannsins við að beisla náttúruna og hvernig það misheppnast á aumkunarverðan hátt, oft með hrikalegum afleiðingum. Leikstjórinn hefur djúpan skilning á frumkröftum hrossa og manna. Með því að nota augnaráð skepnu sem eitt helsta sjónarhornið til að endurspegla grátbroslega hegðun manna fær „Hross í oss“ sérstæðan ljóðrænan blæ en líka svartan, spaugsaman tón.

Loks er Benedikt Erlingsson sagður fléttacsaman kraftmikið myndmál, klippingu og tónlist þannig að myndin sjálf verður eins og náttúruafl.

Fylgdu Nútímanum á Facebook og þú missir ekki af einni einustu frétt.

Auglýsing

læk

Instagram