Ísland ennþá umsóknarríki á vef ESB

Evr­ópu­sam­bandið hef­ur tekið Ísland af lista sín­um yfir um­sókn­ar­ríki að sam­band­inu. Þetta kom fram á mbl.is í vikunni en vísað var í þann hluta á vef sambandsins þar sem hægt er að skoða stöðuna á umsóknarríkjum.

Evrópusambandið virðist þó ekki alveg vera búið að gefast upp á Íslendingum þar sem Ísland er ennþá á lista yfir umsóknarríki á þeim hluta vefsins sem útskýrir hvernig ESB virkar. Hér má sjá Ísland í hópi umsóknarríkja.

Rík­is­stjórn­in til­kynnti Evr­ópu­sam­band­inu um miðjan mars á þessu ári að Ísland væri ekki leng­ur um­sókn­ar­ríki og fór fram á það að landið yrði tekið af lista sam­bands­ins yfir slík ríki.

Það hefur hins vegar tekið sinn tíma að komast af listum yfir umsóknarríki og baráttan virðist ennþá standa yfir.

Auglýsing

læk

Instagram