Jessica Biel opinberlega á móti bólusetningum: „Ástæða fyrir því að það á ekki að taka við læknisráðum frá kvikmyndastjörnum“

Bandaríska leikkonan Jessica Biel hefur gengið til liðs við baráttuna gegn bólusetningafrumvarpi í Kaliforníu-ríki Bandaríkjanna. Frumvarpið miðar að því að draga úr undanþágum vegna bólusetninga. Þetta kemur fram á vef Vísis.

Hún styður við lögmanninn Robert F. Kennedy sem sagði við bandaríska fjölmiðilinn The Daily Beast að hann og Biel væru á móti þeirri pólitísku skriffinsku sem fylgir frumvarpinu og mun neyða börn til að gangast undir bólusetningu.

Jessica Biel er gift tónlistarmanninum og leikaranum Justin Timberlake en mikið grín hefur verið gert af þeim á samfélagsmiðlum eftir fréttirnar.

https://twitter.com/missmayn/status/1138967593425838080

https://twitter.com/BoobsRadley/status/1138994103608176640

Auglýsing

læk

Instagram