Jón Jónsson besti vængmaður allra tíma

Söngvarinn Jón Jónsson fékk hinn 17 ára gamla Dagbjart Jónsson til að hnykla vöðvana undir lok atriðis þess síðarnefnda í Ísland Got Talent um helgina. Viðbrögðin létu ekki á sér standa og Dagbjartur tilkynnti á Twitter að hann gæti varla sofið vegna áreitis frá Facebook:

Og Jón svaraði Dagbjarti um hæl og sagðist ánægður með byssusýninguna.

Dagbjartur segir í viðtali við Fréttablaðið í dag að Facebook hafi eiginlega sprungið:

Ég er kominn með einhverjar fimmtíu vinabeiðnir. Ég veit ekki hvort þetta „flex“ mun skila einhverju en það væri gaman.

Atriði Dagbjarts, þar sem hann hermdi eftir Gollum úr Hringadrottinssögu, komst ekki áfram í keppninni.

Í Fréttablaðinu kemur fram að Dagbjartur stundar nám við Menntaskólann í Kópavogi. Þá kemur fram að hann stundar spjótkast af kappi en hann er úr mikilli frjálsíþróttafjölskyldu. Hlaupadrottningin Martha Ernstsdóttir er móðir hans og Aníta Hinriksdóttir er frænka hans.

 

Auglýsing

læk

Instagram