Justin Bieber á Íslandi, tók myndir af sér með vinum sínum niður við sjó í Reykjanesbæ

Söngvarinn Justin Bieber er staddur á Íslandi, samkvæmt heimildum Nútímans. Bieber var á ferðinni í Reykjanesbæ nú fyrir hádegi ásamt her lífvarða og nokkrum vinum sínum.

Bieber og fylgdarlið hans stoppuðu á Hafnargötunni við veitingastað Lemon í Reykjanesbæ. Hann stökk út ásamt vinum sínum og fór niður að sjó þar sem þeir tóku upp símana og mynduðu sig.

Samkvæmt heimildum Nútímans voru risavaxnir lífverðir með í för sem gerðu vegfarendum ljóst að ef einhver myndi taka upp síma yrði viðkomandi tæklaður. Bieber og fylgdarlið ferðaðist á tveimur stórum, svörtum Mercedes Benz sendiferðarbílum.

Nútíminn hafði samband við starfsfólk Lemon í Reykjanesbæ sem staðfesti að þarna hafi poppstjarnan verið á ferðinni. Þau spjölluðu við Bieber í nokkrar mínútur en hann fékk sér ekki samloku í þetta skipti. Hann var áhugasamur um hvernig væri að búa á Íslandi og sagðist ætla að stoppa stutt.

Auglýsing

læk

Instagram