Justin Bieber kveður klakann: „Besta ferð allra tíma — Ísland, við elskum þig“

Tónlistarmaðurinn Justin Bieber kvaddi Ísland í dag en hann hefur dvalið hér á landi frá því á mánudag. Bieber virðist ánægður með ferðina ef marka má stutt tíst sem hann birti á Twitter í kvöld.

Besta ferð allra tíma, við elskum þig Ísland, segir Bieber og taggar vini sína í færslunni. Þeirra má meðal er ljósmyndarinn Chris Burkard, sem er fastagestur hér á landi og heldur úti ansi glæsilegri instagram-síðu til marks um það og fleiri ævintýraleg ferðalög.

Eins og Nútíminn greindi frá mætti Bieber til landsins fyrir hádegi á mánudag. Hann var var á ferðinni í Reykjanesbæ ásamt her lífvarða og nokkrum vinum sínum og kom meðal annars við Lemon og Subway.

Ýmislegt gekk á en skömmu eftir að hann yfirgaf Subway birtist á netinu mynd af honum sem virtist vera úr öryggismyndavél staðarins.

Í svari Subway við fyrirspurn notanda á Facebook kemur fram að það sé alls ekki í lagi en persónuverndarlög gilda um notkun slíkra mynda opinberlega. Starfsfólk staðarins fékk tiltal.

Taktu prófið! Hvað veistu um Justin Bieber?

Auglýsing

læk

Instagram