Justin Bieber með tónleika á Íslandi, Evróputúrinn hefst í Kópavogi

Justin Bieber er væntanlegur til landsins á ný. Hann kemur fram á tónleikum í Kórnum í Kópavogi föstudaginn 9. september á næsta ári. Alls verða 19.000 miðar í boði sem gerir þessa tónleika að þeim stærstu sem nokkurn tíma hafa verið haldnir hér á landi.

Í tilkynningu frá Senu kemur fram að meira en þrjátíu tónleikar verða haldnir á leikvöngum um Evrópu þvera og endilanga, meðal annars í Englandi, Frakklandi, Þýskalandi, Spáni, víða um Skandinavíu og í Kópavogi á Íslandi.

Meðlimir aðdáendaklúbbs Justins Bieber fá tækifæri til að kaupa miða á tónleikana tveimur dögum áður en almenn sala hefst. Forsala aðdáendaklúbbsins hefst fimmtudaginn 17. desember kl. 16.

Íslenskar forsölur fara fram daginn áður en almenn sala hefst, eða föstudaginn 18. desember kl. 10. Þær verða nánar kynntar innan skamms. Almenn sala hefst svo laugardaginn 19. desember kl. 10 á Tix.is.

Auglýsing

læk

Instagram