Kaleo hefur skrifað undir plötusamning við Atlantic Records um að tónlist hljómsveitarinnar verði gefin út á heimsvísu. Þetta kemur fram í Fréttablaðinu í dag.
Bruce Kalmick, sem starfar fyrir umboðsskrifstofuna Triple 8 Management í Bandaríkjunum, er nýr umboðsmaður hljómsveitarinnar. Hann hefur tröllatrú á hljómsveitinni:
Ég er raunsær maður en þegar kemur að Kaleo er ég ekki í nokkrum vafa. Sveitin á eftir að verða ein þekktasta rokkhljómsveit heims fyrir árið 2017, ef ekki fyrr.
Í Fréttablaðinu kemur einnig fram að hljómsveitin hafi skrifað undir svokallaðan „publishing“-samning við Warner/Chappell Music, sem þýðir að fyrirtækið kemur tónlist Kaleo að í kvikmyndum, auglýsingum og sjónvarpsþáttum.
Jökull Júlíusson, söngvari og gítarleikari Kaleo, segir í Fréttablaðinu að um mjög spennandi tækifæri sé að ræða og hljómsveitin hlakki til að takast á við verkefnið.
„Það er auðvitað mikill heiður að fá að semja við eins sögufrægt fyrirtæki og Atlantic Records. Við erum samt með báða fætur á jörðinni og verðum bara að bíða og sjá hvað þetta leiðir af sér,“ segir hann.