Kardashian-systurnar senda frá sér öpp og rukka aðdáendur sína um mánaðargjald

Kim Kardashian og systur hennar, Khloe, Kyle og Kendall hafa opnað nýjar vefsíður og sent frá sér öpp.

Ýmislegt er í boði í öppunum, svo sem sérstök námskeið í förðun, beinar útsendingar, myndir sem sýna hvað gerist bakvið tjöldin og ýmislegt annað. Öppin eru ekki ókeypis og kosta 2,99 dali á mánuði, eða um 380 krónur.

Á Huffington Post er bent á að aðdáendur systranna gætu verið að kaupa köttinn í sekknum þar sem samskonar förðunarnámskeið er að finna á Youtube, meira að segja eftir sömu förðunarfræðinga og þjónusta Kardashian-systurnar.

Í appi Kim Kardashian er að finna myndir af henni hálfnakinni. Þar má einnig finna sérstaka óléttudagbók þar sem hún opnar sig um meðgönguna en hún gengur nú með annað barn sitt og rapparans Kanye West.

Auglýsing

læk

Instagram