13 myndir sem sýna hvernig nýi borgarinn á Roadhouse verður til

Roadhouse kynnti á dögunum nýjan borgara sem hefur fengið nafnið We Will Rock You. Nafnið er einstaklega viðeigandi þar sem hann vaggar bragðlaukunum áður en hann veltir þeim á hvolf.

En hvernig verður þetta skrímsli til? Varla stekkur hann fram, fullskapaður og tilbúinn til átu? Nei, það gerist ýmislegt áður en hann er borinn fram.

 

 

Eins og öll ævintýri þá hefst þetta með brauði á hvítum diski. Gerið ykkur tilbúin og spennið beltin. Þetta er að byrja

Við byrjum á Roadhouse-sósu ásamt Mississippi BBQ-sósu. Bara svona til að halda þessu öllu saman

prep-3

Næst er það beikonið. Mmmm. Beikon

prep-4

Og til að gefa bragðlaukunum smá spark höfum við jalapenó. Jalapenó er einstaklega bragðgóður pipar

prep-5

Borgarinn er næstur. Við vitum ekki með ykkur en það er farið að vera smá erfitt að skrifa þetta

prep-6

Ofan á borgarann kemur ostasósa. Hún undirbýr það sem koma skal. Ég vona að þið séuð ennþá með okkur því það er ýmislegt eftir

prep-7

Og já, sögðum við ostasósa?

nze2f

Ofan á ostasósuna er að sjálfsögðu djúpsteiktur ostur. Þessi ostur átti bara skilið að vera djúpsteiktur

prep-8

Laukhringirnir eru næstir. Við þau hugrökku sem eru enn þá að lesa viljum segja að þetta er að vera komið. Þraukið!

prep-9

Meiri Roadhouse-sósa og Mississippi BBQ. Þið munið, til að halda þessu saman

prep-11

Og brauð á toppinn…

prep-12

…En það vantar eitthvað á þennan disk? Alveg rétt!

nze07

Verði ykkur að góðu!

prep-13

Auglýsing

læk

Instagram