Líkir Gunnari Nelson við snák

Bloggsíðan Boss MMA birtir áhugaverða greiningu á bardaga Gunnars Nelson og Thatch. Kapparnir berjast á bardagakvöldi UFC á laugardag.

Sjá einnig: Gunnar Nelson dansar við Chandelier

Í greiningunni kemur fram að Gunnar hafi tólin til að sigra Thatch og að Bandaríkjamaðurinn þurfi að rota Gunnar í fyrstu lotu til að eiga séns.

Gunnari er líkt við snák í greiningunni.

Hann verður rólegur en ræðst svo til atlögu, nælir í útlim og vefur sig utan um andstæðing sinn og hengir hann oftar en ekki.

Búast má við jöfnum bardaga en Gunnar og Thatch eru afar ólíkir, eins og farið er yfir í greiningunni.

Gunnar hefur áður verið líkt við snák. Það gerði ritstjóri Nútímans í myndbandi þar sem hann klippti lýsingu David Attenborough við bardaga Gunnars og Omar Akhemdov í mars í fyrra.

David Attenborough lýsir bardaga Gunna NelsonHvernig hefði verið að horfa á bardaga Gunna Nelson í gær ef David Attenborough hefði lýst honum? Einhvern veginn svona.

Posted by Atli Fannar Bjarkason on Sunday, March 9, 2014

Auglýsing

læk

Instagram