Liverpool kostaði íslenskan tippara 210 milljónir

Íslensk­ur tipp­ari varð af 210 milljóna vinningi þegar Liverpool og Bolton gerðu jafntefli í ensku bikarkeppninni. Leiknum lauk rétt í þessu.

Ef Liverpool hefði unnið leikinn hefði tipp­ar­inn verið með alla þrett­án leik­ina á enska get­rauna­seðlin­um rétta og fengið millj­ónirnar 210 í vinn­ing.Þetta kom fram í tilkynningu frá Íslenskri getspá.

Leikur Liverpool og Bolton var sá síðasti á enska get­rauna­seðlin­um en 12 leikj­um er lokið. Eng­inn tipp­ari var því með 13 rétta og fær­ist þá vinn­ings­upp­hæðin yfir á enska get­rauna­seðil­inn í næstu viku.

Tipparinn var þegar búinn að ná ótrúlegum úrslitum en bæði Manchester City og Chelsea töpuðu sínum leikjum.

Auglýsing

læk

Instagram