Lofa stærri og þrýstnari vörum með varapumpu

Á Facebook-síðunni Beuaty4Lips er til sölu sérstök varapumpa sem á að gera varirnar stærri og þrýstnari.

Á síðunni kemur fram að varapumpan sé munnstykki sem virki á einfaldan hátt og að varirnar breytist á náttúrulegan hátt án lýtaaðgerðar. Myndband af notkun varapumpunnar má sjá hér fyrir neðan.

Varapumpan kostar 5.900 krónur á sérstöku kynningarverði en neðar á síðunni má sjá að hún kostaði 9.900 krónur áður. Á síðunni er birt mynd af stúlku fyrir og eftir notkun pumpunnar.

Aðstandendur síðunnar hafa ekki svarað fyrirspurn Nútímans um vöruna.

https://www.youtube.com/watch?v=8pMeGKlxjSA

Auglýsing

læk

Instagram