Logi Pedro lætur ritstjóra ungra Sjálfstæðismanna heyra það eftir misheppnað grín á Twitter

Ansi furðuleg uppákoma átti sér stað á Twitter í gær. Grínið hér fyrir neðan var birt á reikningi ungra Sjálfstæðismanna en fjarlægt um hæl. Internetið gleymir engu og þessi notandi greip skjáskot.

https://twitter.com/MattDeaves/status/715937493762318342

Það kom svo í ljós að tístið var hugarsmíð Viktors Lorange, ritstjóra vefs Sambands ungra Sjálfstæðismanna, sus.is. Ljóst er að hann ætlaði að birta tístið á eigin reikningi.

Auðvelt er að gera þessi mistök þegar hugbúnaður á borð við TweetDeck er notaður en með honum er hægt að vera skráður inn á fleiri en einn Twitter reikning í einu.

Tónlistarmaðurinn Logi Pedro, úr Sturla Atlas og Retro Stefson, hafði engan húmor fyrir gríninu og lét Viktor heyra það

En Viktor baðst afsökunar á tístinu

Og ungir Sjálfstæðismenn fordæmdu tístið

 

Auglýsing

læk

Instagram