Mynd af berum bossa Kim Kardashian lekið á netið

Mynd af Kim Kardashian að bera á sér bossann var lekið á internetið í gær. Myndina má sjá hér fyrir neðan.

Myndin er úr tímaritinu LOVE sem kemur út á næstu dögum en sá eða sú sem lak myndinni virðist vera með tölublaðið undir höndum. Í myndaþættinum er Kim aðeins klædd í leðurjakka, sokka og háa hæla. Hún er að taka smók af sígarettu og jú, snýr afturendanum í myndavélina.

Myndin er tekin af bandaríska ljósmyndaranum Steven Klein, sem hefur unnið með poppstjörnum á borð við Madonna og Lady Gaga.

Internetið virðist stöðugt þrátt fyrir myndbirtinguna en tilraun Kim til að brjóta internetið með glansandi afturendanum í nóvember vakti heimsathygli.

Auglýsing

læk

Instagram