Myndband af krúttlegum hundi brýtur Internetið: „Þurfum að þykjast opna“

Myndband af hundi einum sem neitar að koma inn í íbúð nema íbúar opni ósýnilega hurð hefur farið sem eldur í sinu um netheima. Myndbandið er afar krúttlegt og má sjá í spilaranum hér að neðan.

Það var Twitter-notandinn Jensen Kendall sem birti myndbandið en þegar þessi frétt er skrifuð hafa tæplega 8 milljónir manna séð það.

„Hann heldur alltaf að gluggahurðin sé lokuð, svo við þurfum að þykjast opna fyrir honum,“ skrifaði Jensen með tístinu.

Auglýsing

læk

Instagram