Myndband: Drake stöðvaði tónleika og hótaði manni sem var að áreita stelpur

Tónlistarmaðurinn Drake, stöðvaði tónleika sem haldnir voru í Sydney í gær þegar hann tók eftir manni sem var að áreita stelpur í salnum. Myndband sem sýnir viðbrögð Drake hafa vakið mikla athygli.

„Ef þú hættir ekki að snerta þessa stelpu kem ég niður og fokka þér upp,“ sagði Drake og uppskar mikinn fögnuð viðstaddra.

Ein þeirra sem stödd var á tónleikunum, Louise Sukari tók myndband af atvikinu sem BBC hefur klippt saman. Horfðu á myndbandið í spilaranum hér að ofan.

Auglýsing

læk

Instagram