Of Monsters and Men í Game of Thrones: „Erum með þættina á heilanum“

Of Monsters and Men fetar í fótspor Sigur Rósar og kemur fram í næstu þáttaröð af Game of Thrones. Þetta kemur fram á vefnum Watchers on the Wall, sem er helguð þáttunum.

Á síðunni eru birtar myndir af meðlimum Of Monsters and Men við tökur þáttanna í Girona á Spáni í vikunni. Myndirnar sína Ragnar Þórhallsson, Nönnu Bryndísi Hilmarsdóttur og Arnar Rósenkranz slaka á í búningum úr þáttunum.

Óvíst er nákvæmlega hvert hlutverk þeirra er í þáttunum en búast má við að þau flytji tónlist, líkt og Sigur Rós.

Þau eru miklir aðdáendur þáttanna og Nanna Bryndís sagði í viðtali við tímaritið Interview fyrr á árinu að þau væru hreinlega með þættina á heilanum. „Já, guð minn almáttugur. Við elskum þetta. Við erum með Game of Thrones á heilanum,“ sagði hún.

Auglýsing

læk

Instagram