Ólafur Ragnar hitti Hillary Clinton

Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, hitti Hillary Clinton, fyrrverandi utanríkisráðherra Bandaríkjanna, á ráðstefnunni Clinton Global Initiative í New York um helgina.

Á vef forsetans kemur fram að Ólafur verður meðal frummælenda á ráðstefnunni í sérstökum málstofum um nýtingu hreinnar orku í þágu sjálfbærni og efnahagsþróunar og um hvernig áföll og kreppur geta leitt til nýsköpunar og framfara.

Í gær tók Ólafur þátt í umræðum um loftslagsbreytingar og efnahagsþróun á málþinginu The New York Forum sem haldið var í bókasafni borgarinnar, The New York Public Library.

Í lok síðustu viku tóku forsetahjónin þátt í málþingi sem bandaríski sjónvarpsmaðurinn og þáttastjórnandinn Charlie Rose efndi til í Aspen. Meðal þátttakenda í málþinginu voru fjölmargir forystumenn úr bandarískum stjórnmálum og viðskiptalífi, frumkvöðlar og vísindamenn, stjórnendur háskóla sem og forystumenn alþjóðlegra stofnana og fyrirtækja.

Sjáðu myndirnar hér á vef forsetans.

Auglýsing

læk

Instagram