Ótrúleg breyting á Zach Galifianakis

Leikarinn Zach Galifianakis var gjörbreyttur þegar hann mætti á viðburð tengdum kvikmyndahátíðinni New York Film Festival, sem fór fram á dögunum. Galifianakis hefur verið þybbinn undanfarin ár en hefur augljóslega sýnt hlaupabrettinu hvar Davíð keypti ölið. Þá er hann búinn að safna hári og snyrta skeggið:

Galifianakis er einn fyndnasti leikarinn í Hollywood og er eflaust þekktastur fyrir hlutverk sitt sem Alan í Hangover-trílógíunni misjöfnu. Þá vann hann Emmy-verðlaun fyrir þetta myndband hér.

Á meðal væntanlegra mynda með Galifianakis eru Loomis Fargo, með Kristen Wiig og Owen Wilson og Tulip Fever, með Christopher Waltz og Cöru Delevingne.

Þá á kvikmyndin Birdman (or The Unexpected Vurtue of Ignorance) eftir að reka á strendur landsins.

 

Auglýsing

læk

Instagram