Playboy fjallar um Katrínu Tönju: „Lyftir eins og Hulk og lítur út eins og leikfélagi“

Vefur tímaritsins Playboy birtir í dag umfjöllun um Katrínu Tönju Davíðsdóttur, sem varð á dögunum heimsmeistari í crossift. Katrín hlaut þá titilinn: Hraustasta kona heims og vann sér inn um 38 milljónir í verðlaunafé.

Sjá einnig: Peningarnir á heimsleikunum í Crossfit: Íslendingarnir nældu sér í tugi milljóna

Á vef Playboy eru birtar myndir af Instagram-síðu Katrínar og fjallað um hana í stuttu máli. Í textanum kemur fram að hún sé vel að titlinum komin og að hún virðist vera fær í flestan sjó.

Nefndu það og þessi 22 ára íslenska stúlka getur gert það: Hlaupið, synt, klifrað, staðið á annarri hendi. Hún getur meira að segja lift eins og Hulk á meðan hún lítur út eins og leikfélagi (e. Playmate).

Loks segir að það séu milljón ástæður fyrir því að hún ætti að vera fyrsta val hvers gaurs þegar uppvakningarnir taka yfir. Hvað sem það nú þýðir.

Auglýsing

læk

Instagram