QuizUp opnast upp á gátt, notendur semja spurningarnar í nýrri uppfærslu

My QuizUp, ný útgáfa af QuizUp appinu vinsæla hefur verið kynnt til sögunnar. My QuizUp gerir notendunum kleift að búa til spurningar um hvað sem er, hvort sem þær tengjast áhugamálum þeirra eða jafnvel þeim sjálfum.

Stígur Helgason, verkefnastjóri hjá QuizUp, segir í samtali við Fréttatímann, að áður hafi ritstjórnarteymi samið allar spurningarnar í QuizUp.

Við höfum fundið fyrir því alveg frá því að leikurinn kom út upphaflega að það hefur verið gríðarleg eftirspurn eftir allskonar spurningaflokkum, við fáum slíkar beiðnir í hrönnum á hverjum degi og getum einfaldlega ekki annað þeirri eftirspurn.

Nú geta notendur deilt spurningunum og flokkunum með vinum og öðrum leikmönnum í QuizUp. Fólk semur spurningar á Quizup.com og getur samstundis spilað spurningaflokka hvers annars.

Auglýsing

læk

Instagram