Randy Quaid birtir stórfurðulegt myndband

Leikarinn Randy Quaid birti í myndband á internetinu þar sem hann fer yfir hvernig fjölmiðlarisinn News Corp og afþreyingarrisinn Warner fóru illa með sig.

Quaid hefur helst komist í fréttir vegna samsæriskenninga sinna undanfarið en minna hefur farið fyrir leiksigrum á borð við þá sem við sáum í kvikmyndunum Christmas Vacation og Independence Day.

Í lok myndbandsins fær hann svo eiginkonu sína til að setja á sig grímu með andliti fjölmiðlamógúlsins Ruperts Murdoch og þykist stunda með henni, eða öllu heldur honum, kynlíf.

Þetta er það furðulegasta sem þið sjáið í dag. Myndbandið má sjá hér fyrir neðan.

Auglýsing

læk

Instagram