Róbert Marshall selur Marshall-magnarann sinn: „Sándið hentar mér ekki lengur“

Róbert Marshall, fyrrverandi þingmaður, hefur sett lampamagnara af gerðinni Marshall Class 5 á sölu á Facebook. Ástæðan er einföld.

Það er vandræðalegt, en Marshall-sándið hentar mér ekki lengur.

Auglýsinguna er að finna á síðunni Hljóðfæradrasl óskast/til sölu. Hann er sagður vel með farinn, lítið notaður og frábær. Einnig er hann góður í heimafikt, æfingar og minni eða mækuð gigg.

Síðan er það rúsínan í pylsuendanum. Magnarinn er ekki lengur framleiddur. Þetta er því kjörið tækifæri fyrir aðdáendur magnarans, nú eða safnara.

 

Auglýsing

læk

Instagram