Sara gaf Sigga ananas-strák í afmælisgjöf eftir hvatningu á Twitter í sannkallaðri samtímaástarsögu

Sara Valgeirsdóttir leyfði internetinu að velja afmælisgjöf handa Sigga, kærastanum sínum, í gær. Gjöfin var ekki af verri endanum; hún keypti handa honum ananas-strák. Ananas-strák? Ananas-strák.

Sagan hófst þegar Sara birti þetta tíst á Twitter þar sem hún lofaði að gefa Sigga umræddan ananas-strák ef hún fengi 400 like á myndina. Hún bjóst greinilega ekki við því að þurfa að standa við stóru orðin en blessunarlega var hann ekki dýr — 1.200 krónur eru ekki neitt fyrir ananas-strák.

En lækin urðu 400 á mettíma og viðbrögð Söru voru ótvíræð þegar það var ljóst

Ananas-stráknum var því pakkað inn í fallegar umbúðir og pakkinn beið Sigga, sem vissi ekki hverju hann átti von á

Og tilfinningar Sigga voru … blendnar. Sjáðu myndband hér fyrir ofan sem Sara tók af Sigga eftir að hún afhenti honum ananas-strákinn

Í samtali við Nútímann segir Sara að Siggi hafi þó verið fljótur að finna stað fyrir ananas-strákinn. „Hann laumaði honum þarna,“ segir hún og bendir á mynd af hillu í stofu parsins.

Allt er  gott sem endar vel!

Auglýsing

læk

Instagram