Sara Heimis tekur á því í Las Vegas, Rich Piana birtir myndband með hrikalegum átökum

Vaxtaræktarkonan Sara Heims giftist vöðvatröllinu Rich Piana á dögunum en fréttir af hjónunum hafa vakið mikla athygli. Rich rekur fyrirtækið 5% sem framleiðir fatnað og fæðubótarefni og er duglegur við að birta myndbönd á Youtube af æfingum ásamt góðum ráðum fyrir þau sem vilja taka á því.

Piana hefur nú birt myndband af Söru að æfa í Las Vegas og átökin eru svakaleg. Horfðu á myndbandið hér fyrir ofan.

Sjá einnig: Stórkostlegustu augnablikin úr brúðkaupi Rich Piana og Söru Heimis

Sara og Rich voru í viðtali í Sunnudagsmogganum á dögunum. Þar kom meðal annars fram að þau horfi til undirfataiðnaðarins í leit að næstu verkefnum.

„Það kannast flestir hundaeigendur við tilfinninguna að langa til að eignast annan hund þegar sá fyrsti fer að verða stór,“ sagði Rich í Morgunblaðinu.

Það er svo ofboðslega gaman að fylgjast með hvolpinum vaxa og dafna. Þannig er þetta með 5%. Nú þegar þetta fyrirtæki er farið að ganga vel er mig farið að langa til að koma nýju verkefni af stað.

Hann sagðist sjá tækifæri í öllum hornum.

„Ég get nefnt sem dæmi að við vorum í verslunarmiðstöð um daginn, fórum inn í Victoria’s Secret í leit að undirfötum handa Söru og áttum í mestu vandræðum með að finna brjóstahaldara sem pössuðu henni. Svo að ég fór að hugsa: Auðvitað ættum við að opna undirfataverslun með sérsaumuðum brjóstahöldurum.

Ég veit að Sara er ekki eina konan sem er í vandræðum með að finna brjóstahaldara sem passar henni fullkomlega. Ég sæi vel fyrir mér að það væri hægt að koma í undirfataverslun, fá fullkomna mælingu og svo sérsaumaðan brjóstahaldara.“

Sara sagði í viðtalinu að það sé hreinasta martröð að finna réttu skálastærðina, það sé ómögulegt að fá brjóstahaldara sem passi konum sem þurfa stærri skálar en eru einnig með grönn mitti.

Auglýsing

læk

Instagram