Snapparinn Enski skorar á Egil Einarsson í greindarpróf eftir að hann gagnrýndi stuðningsmenn Liverpool

Snapparinn vinsæli Viðar Skjóldal eða Enski (enskiboltinn) eins og hann kallar sig hefur skorað á einkaþjálfarinn Egil Einarsson í greindarpróf. Viðar birti áskorunina á Twitter.

Sjá einnig: Snapparinn Enski sendir frá sér eigin vörulínu: „Er í raun orðlaus yfir því hvað þetta er flott“

Málið hófst þegar Egill sagði í færslu á Twitter að hér á landi mætti finna fimm heilbrigða stuðningsmenn Liverpool. Viðar, sem er harður stuðningsmaður liðsins var ekki á listanum og ákvað því að svara fyrir sig.

Egill sem er mikill stuðningsmaður Manchester United var fljótur að bregðast við þessari áskorun. „Ég fer ekki í keppni sem ég á ekki breik í,“ skrifaði Egill.

Auglýsing

læk

Instagram