Snorri Björns fer hringinn í kringum jörðina á átta dögum og sýnir frá ferðinni á Snapchat

Snapparinn Snorri Björnsson ætlar að ferðast í kringum jörðina á átta dögum og heimsækja þrettán áfangastaði með vini sínum. Hann er lagður af stað og fyrstu snöppin frá ferðinni má sjá í myndbandinu hér fyrir ofan. 

Um er að ræða samstarfsverkefni við ferðaskrifstofuna Tripical en markmiðið er að sýna fólk hversu auðvelt er að ferðast og gera mikið ef maður er skipulagður. Tripical var stofnuð fyrir rúmu ári.

Hægt er að fylgjast með ferðinni á Snapchat og Instagram hjá Snorra og heitir hann snorribjorns á báðum stöðum. Einnig verður sagt frá ferðinni á heimasíðu Tripical og á Instagram-reikningi þeirra (tripicaltravel).

Auglýsing

læk

Instagram