Snorri og Manuela búin að bóka borð, Harpa bauð þeim út en rétt missti af þeim

Snapchat-stjörnurnar Manuela Ósk og Snorri Björnsson eru búin að bóka borð fyrir umtalaðasta stefnumót landsins. Snorri upplýsti þetta á Twitter í dag og þar bíður fólk með öndina í hálsinum.

Förum aðeins yfir þetta. Þúsundir fylgja Snorra (snorribjorns) og Manuelu (manuelaosk) á Snapchat. Vangaveltur um stefnumót þeirra hófust þegar Manuela birti tíst á Twitter þar sem hún gaf í skyn að hún væri skotin í Snorra.

Sjá einnig: Sjóðandi heita stefnumótið sem allir bíða eftir, Snorri Björns og Manuela Ósk í beinni á Snapchat

Ertu enn þá að lesa? Gott. Snorri svaraði Manuelu og fór svo í morgunþáttinn Brennsluna á FM957 og fullyrti að stefnumótið myndi eiga sér stað. Tónlistar- og ráðstefnuhúsið Harpa blandaði sér svo óvænt í málið á Twitter og bauð þeim út að borða á Kolabrautina.

Snorri kann vel að meta boð Hörpu en lýsti svo yfir að borð hafi verið bókað. Það er því ljóst að þúsundir bíða eftir frekari fréttum sem munu eflaust birtast fyrst á Snapchat.

Auglýsing

læk

Instagram