Spartacus-stjarna glamrar á píanó í Óperunni

Leikarinn Manu Bennett hefur verið staddur hér á landi undanfarna daga. Bennett er þekktastur fyrir hlutverk sitt í þáttunum Spartacus. Hann leikur einnig orkann Azog í Hobbitanum og Deathstroke í þáttunum Arrow.

Samkvæmt heimildum Nútímans er hann á leiðinni frá París til New York en millilenti hér á landi vegna ferkfalls flugmanna Air France sem hófst 15. september.

Bennett hefur nýtt tíma sinn vel hér á landi og farið víða. Þetta myndband af honum að spila á píanó á efri hæð Íslensku Óperunnar skaut upp kollinum í gær. Honum er augljóslega ýmislegt til lista lagt:

 

Auglýsing

læk

Instagram