Vill kynjakvóta í kvikmyndagerð

Engin kona var leikstjóri, handritshöfundur, kvikmyndatökumaður eða höfundur tónlistar í kvikmynd í fullri lengd á síðasta ári. Dögg Mósesdóttir, formaður Wift, samtaka kvenna í sjónvarpi og kvikmyndum, segir stöðuna vandræðalega og telur lausnina geta falist í því að setja á kynjakvóta. Þetta kemur fram í Fréttablaðinu í dag.

Kristín Atladóttir hagfræðingur hefur tekið saman gögn um hlutföll kvenna í íslenskum kvikmyndum á síðasta ári. Niðurstaðan er sú að konur eru atkvæðalitlar í íslenskri kvikmyndagerð.

Í Fréttablaðinu kemur fram að ef litið er til allra verka við kvikmyndagerð á síðasta ári þá voru karlar 73% þeirra sem störfuðu að kvikmyndum og aðeins 27% konur. Þá kemur fram að konur veljast fremur í aukahlutverk og starfa við búninga og smink en karlar við framleiðslu, leikstjórn og kvikmyndatöku.

Dögg Mósesdóttir segir í Fréttablaðinu þörf á róttækum breytingum til að jafna hlutföll kynja í kvikmyndagerð og telur lausnina geta falist í kynjakvóta.

Þetta er mjög vandræðaleg staða fyrir íslenska kvikmyndagerð. Til dæmis áttum við að senda eina íslenska konu sem hafði leikstýrt kvikmynd í fullri lengd á síðustu árum á kvikmyndahátíðina Nordisk Panorama. Það var engin kona sem hafði lokið mynd á árinu og því varð úr að Benedikt Erlingsson var sendur á hátíðina. Það finnst engum þetta jákvætt.

Hún segir að næsta skref sé að fá karlana í lið og bendir á að þetta sé ekki einkamál kvenna:

„Ég veit að þeir eru margir sem eru með okkur í liði en við þurfum öll að vera vakandi því konur geta líka verið karlrembur,“ bendir Dögg í Fréttablaðinu.

Auglýsing

læk

Instagram