Voru mistökin ekki bandaríska ferðamannsins? Hótel Frón við LaugaRveg á bókunarsíðum

Bandaríski ferðamaðurinn sem villtist á Laugarveg á Siglufirði þegar hann ætlaði á Laugaveg í Reykjavík virtist í fyrstu hafa ruglast við notkun á GPS-tæki. Það þarf hins vegar alls ekki að vera að mistökin hafi verið hans …

Hótel Frón er sagt standa við Laugarveg á fjölmörgum bókunarsíðum á internetinu. Það er rangt. Hótelið stendur hins vegar við Laugaveg í Reykjavík en Laugarvegur á Siglufirði inniheldur „R“ sem Reykvíkingar kannast ekki við.

 

Fjölmargar bókunarsíður sýna Hótel Frón standa við LaugaRveg eins og sjá má á Google

laugarvegur

Saga ferðamannsins hefur vakið gríðarlega athygli enda mistökin sprenghlægileg

Hann átti bókað herbergi á Hótel Frón. Eftir að hafa keyrt í fimm klukkustundir bankaði hann upp á hjá Sigurlínu Káradóttur sem býr á Laugarvegi, með R-i, á Siglufirði og spurði hvort Hótel Frón væri í grenndinni.

Sjá einnig: Hér er leiðin sem bandaríski ferðamaðurinn ók, fór á Laugarveg í staðinn fyrir Laugaveg

Í samtali við Vísi segir Sigurlína að hún hafi haldið að um grín væri að ræða og að sá bandaríski hafi orðið vandræðalegur þegar hún útskýrði fyrir honum mistökin.

Hann vissi ekki alveg hvernig hann átti að vera. Þannig að ég bauð honum bara inn og bauðst til að hringja á hótelið fyrir hann og útskýra fyrir honum að hann kæmi ekki á Hótel Frón í dag. Hann fékk bókuninni breytt þannig að hann fer þangað seinna í vikunni.

Hann dvelur nú á Hótel Siglufirði og samkvæmt Vísi var vel tekið á móti honum.

Auglýsing

læk

Instagram