Young Karin kemur fram á Hróarskeldu

Uppfært: Það eru fullt af íslenskum hljómsveitum á Hróarskeldu Vintage Caravan, Vök og Kippi Kaninus koma einnig fram.

Dúettinn Young Karin kemur fram á Hróarskelduhátíðinni í Danmörku í sumar. Þetta kemur fram á vef Hróarskeldu.

Young Karin var stofnuð árið 2013 en dúettinn skipa söngkonan Karin Sveinsdóttir og Logi Pedro Stefánsson, sem er þekktastur fyrir að vera í hljómsveitinni Retro Stefson.

Þau hafa sent frá sér eina stuttskífu sem var valin nýliðaplata ársins á íslensku tónlistarverðlaununum fyrir skömmu. Young Karin hefur samið við útgáfuna Bella Union og vinnur nú að sinni fyrstu breiðskífu.

 

Auglýsing

læk

Instagram