Dásamlegur kjúklingaréttur í rjómasósu!

Hráefni:

  • 4-6 kjúklingabringur
  • 2 msk smjör
  • 3 tsk rifinn hvítlaukur
  • 2 tsk ítalskt krydd
  • 2 1/2 dl kjúklingasoð
  • fersk basilika
  • salt og pipar eftir smekk
  • 1 dl sólþurrkaðir tómatar, saxaðir niður
  • 1 1/2 dl rjómi
  • 2 dl rifinn parmesan plús extra fyrir skraut

 

Aðferð:

1. Hitið smjör á pönnu og steikið kjúklingabringurnar í 5-7 mín á hvorri hlið eða þar til þær eru orðnar fallega gylltar og eldaðar í gegn. Færið þær yfir á disk eða fat á meðan sósan er útbúin.

2. Notið sömu pönnu og bætið á hana hvítlauk, ítölsku kryddi, sólþurrkuðum tómötum, kjúklingasoði, rjóma og parmesanosti. Náið upp suðu og leyfið þessu að malla í 5-7 mín.

3. Færið kjúklinginn aftur á pönnuna og leyfið honum að hitna í sósunni. Toppið með parmesan, svörtum pipar og ferskri basiliku. Berið fram strax og njótið!

Auglýsing

læk

Instagram